Ferðafélag Fljótsdalshéraðs á og rekur 3 stórglæsilega gönguskála á Víknaslóðum. Skálarnir eru með best útbúnu gönguskálum á landinu, og er þar að finna allt til þess að gera dvölina einstaklega ánægjulega. Skálarnir eru byggðir í sjálfboðavinnu af meðlimum og velunnurum FFF frá árunum 1998 - 2009 en ennþá er verið að bæta aðstöðuna á hverju sumri, gestum til aukinna þæginda. Yfir háannatímann er skálavörður staðsettur í hverjum skála sem sér um að allt sé í röð og reglu. Við mælum með því að bóka dvöl í skálunum fyrirfram í s 863-5813 eða
Sýndarferðalag um gönguskála FFF