Foreldrar, skólastjóri, kennarar og skólabílstjórar eru beðnir um að fylgjast vel með veðurspám og fréttum af náttúruhamförum.
Foreldrar
Sendið börnin aldrei af stað í skólann fyrir klukkan hálf átta.
Sendið börn ykkar aldrei gangandi ein í skólann ef veður er mjög slæmt.
Foreldrar geta alltaf tekið þá ákvörðun að veðrið sé of vont til að senda barnið í skólann. Hringið þá í skólann og látið vita að nemandinn verði heima
Við skólann hefur verið gerð áætlun um hvernig bregðast eigi við ófærð, óveðri og náttúruhamförum.
Umsjónarkennarar hringja í foreldra sinna nemenda um klukkan hálf átta og afboða skólahald ef þurfa þykir.
Deildarstjóri leikskóla hringir í foreldra leikskólabarna.
Tilkynning verður sett á vefsíðu/fb-síðu skólans í kjölfarið.
Ef aflýsa þarf skólahaldi vegna öskufalls eða náttúruhamfara verður hringt í foreldra líkt og um óveður eða ófærð sé að ræða.
Ef aflýsa þarf skólahaldi á miðjum degi vegna öskufalls/náttúruhamfara verður hringt í foreldra og þeir beðnir um að sækja börn sín tafarlaust ef fyrirséð er að nokkur tími líði þar til áhrifa á borð við öskufall nær hingað. Skólabílstjórar aka þá nemendum úr sveitinni heim eftir samáð við foreldra.
Í skyndilegu öskufalli yrðu félagar úr björgunarsveitinni Sveinunga beðnir um aðstoð við að koma börnum heim.
Vel er fylgst með magni brennisteinsdíoxíðs í andrúmslofti og gerðar eru viðeigandi ráðstafanir ef magn þess eykst. Mælir frá Umhverfisstofnun er staðsettur við skólann mælir hann styrk brennisteinsdíoxíðs í andrúmsloftinu.