Nemendur grunnskólans að setja niður kartöflur vorið 2014
Dagana 11.-12.október verður haldið menntaþing á Borgarfirði eystra. Tilgangur þingsins er að skapa umræðu um jafnréttis- og
skólamál og kynna um leið áherslur sem samræmast stefnu Grunnskólans á Borgarfirði eystra.
Skólinn og jafnréttisnefnd stendur að þinginu með hjálp frá Lýðheilsusjóði og Jafnréttisstofu. Þingið ber
yfirskriftina sjálfbærni og samskipti.
Hluti dagskrárinnar er sérstaklega ætlaður Borgfirðingum (laugardagur) en málþingið á sunnudeginum er opið öllum: foreldrum, kennurum og
öðrum. Foreldrar á Borgarfirði eru sérstaklega hvattir til
að mæta en aðrir foreldrar og skólafólk á Austurlandi er einnig hjartanlega velkomið.
Við viljum endilega sjá sem flesta og því höfum við fengið úrvals fólk til að halda
sérlega skemmtileg og fræðandi erindi.
Dagskrá
Laugardagur 11. október
11:00 Jafnréttisnefnd Borgarfjarðar hittir fulltrúa frá
Jafnréttisstofu
12:00 – 13:30
Jafnréttisstofa býður Borgfirðingum í súpufund
að Álfakaffi
Erindi Jafnréttisstofu og íbúaspjall um jafnréttismál, ilmandi
súpa að hætti hússins í boði. Allir Borgfirðingar hjartanlega velkomnir aðgangur og súpa ókeypis.
Málþing um sjálfbærni og samskipti
Allir velkomnir á skemmtilegt fræðandi og hagnýtt málþing.
Sunnudagur 12. október.
13:00 Þingsetning
13:15 Ása Hlín Svavarsdóttir leikari og kennari.
Sagan um ruslaþorpið og afdrif
þeirra sem þar bjuggu.
Sjálfbærni og samþætting í kennslu- hvað er
það?
14:00 Jakob Frímann Þorsteinsson, adjunkt við menntavísindasvið HÍ og
formaður
námsbrautar í tómstunda og félagsmálafræði.
Útinám,
náttúra og sjálfbærni.
Af hverju útinám? Hvernig gagnast útinám nemendum í leik- og
grunnskóla sem og aðilum í ferðaþjónustu og íbúum almennt.
14:50 Kaffi
15: 15 Vanda Sigurgeirsdóttir lektor við menntavísindasvið HÍ
Samskipti, einelti og
vinátta.
Hagnýtar leiðir og góð ráð fyrir foreldra og kennara.
16:00 Spjall
16:15 Þinglok
Mánudagur 13.október
Jakob Frímann og Vanda vinna að útinámi með nemendum og kennurum í Grunnskóla Borgarfjarðar eystra fyrir
hádegi. Eftir hádegi: Námskeið fyrir kennara: Útinám; Hugur, hönd og hjarta fyrir kennara. 13:00 – 16:00 staðsetning
Grunnskóli Borgarfjarðar eystra.
Á námskeiðinu verður farið yfir fræðin sem styðja við markvisst útinám með kennurum en auk
þess á námskeiðið að gefa kennurum verkfæri í hendur til að vinna með útinám (nám undir berum himni).Við
bjóðum kennurum á Austurlandi að sitja námskeiðið með okkur, skráning á námskeiðið hjá skólastjóra.
skolastjorigbe@ismennt.is