Hlauptu - týnstu
Árshátíð Grunnskóla Borgarfjarðar eystra Árshátíð skólans verður haldin í
Fjarðarborg laugardaginn 21. mars kl. 14.00.
Dagskrá árshátíðar verður tvískipt að þessu sinni:
Nemendur 2.-5. bekkjar flytja leikritið ,,Urð og grjót“eftir Bryndísi Skúladóttur og nemendur hennar, en verkið er byggt á
frásögn Jóns á Sólbakka af viðburðaríkri fjallgöngu hans og Sigmars á Desjarmýri á hæsta tind Dyrfjalla.
Nemendur 8.-9. bekkjar færa okkur svo leikritið ,,Hlauptu, týnstu“ eftir Berg Ebba Benediktsson. Verkið er hluti af leiklistarverkefninu Þjóðleik
á vegum Þjóðleikhússins.
Kaffihlaðborð að hætti foreldrafélagsins verður að sýningu lokinni.
Miðaverð kr. 1500 (leiksýning og kaffihlaðborð). Frítt fyrir nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar eystra og börn 6 ára og yngri.
Verið hjartanlega velkomin, við hlökkum til að sjá ykkur!
Nemendur og starfsfólk grunnskólans