Bláfáninn kominn út í höfn

Jón og leikskólakrakkarnir með Bláfánann
Jón og leikskólakrakkarnir með Bláfánann
Nú í síðastliðinni viku var bláfáninn dreginn að húni við Smábátahöfnina, en þetta er 8 sumarið sem höfnin fær þessa umhverfisvottun. Að vanda voru það leikskólakrakkarnir sem sáu um að flagga fánanum, en fengu aðstoð við verkið hjá Jóni sveitarstjóra. Ásta Þorleifsdóttir mætti sem fulltrúi Landverndar sem hefur yfirumsjón með verkefninu.