Áætlaður heildarkostnaður verkefna er um 41 m.kr. en sótt var um
styrki fyrir 17 m.kr. Kynjahlutföll á milli þeirra sem hlutu styrki eru 5
konur og 7 karlar. Styrkirnir eru hluti af verkefni Byggðastofnunar,
Brothættar byggðir.
Heildarlisti yfir styrkþega árið 2018:
Nafn umsækjanda Nafn verkefnis Styrkupphæð
Blábjörg ehf. Kaup á vetrarbúnaði 600.000 ISK
Blábjörg ehf. Viðskiptaáætlun: Gamla kaupfélagið 300.000 ISK
Ferðamálahópur Borgarfjarðar Landvarsla á Víknaslóðum 300.000 ISK
Eyþór Stefánsson Viðskiptaáætlun: Útsýnissiglingar 300.000 ISK
Bryndís Snjólfsdóttir Handverk og hönnun á Borgarfirði eystra 600.000 ISK
Fuglavernd Hafnarhólmi: Lífríki og fræðsla 300.000 ISK
Kata Sümegi Porcelain Studio: „It all started with a kiln“ 500.000 ISK
Travel East Borgafjörður eystri: The Capital of Hiking 700.000 ISK
Bátasafn Borgarfjarðar Viðskiptaáætlun og hönnun 600.000 ISK
Melanie Baldvinsdóttir Viðburðadagatal og tilkynningatafla 50.000 ISK
Björn Kristjánsson Lífræn ræktun 250.000 ISK
Ungmennafélag Borgarfjarðar Frisbígolfvöllur 700.000 ISK
Gusa ehf. Búðin Borgarfirði – geymsluhúsnæði 500.000 ISK
Gusa ehf. Búðin Borgarfirði – rekstrarráðgjöf og þjálfun 500.000 ISK
Gusa ehf. Búðin Borgarfirði – uppfærsla rekstrartækja 800.000 ISK
7.000.000 ISK
Verkefnin sem hlutu styrki eru fjölbreytt og verður spennandi að fylgjast með þeim blómstra.
Búðin Borgarfirði, sem opnaði í lok júní sl. hlaut hæsta styrkinn að þessu sinni, samtals 1,8 m.kr.
Eins
og kom fram á íbúaþingi síðasta vetur var efst á forgangslista að opna
verslun aftur og er því ánægjulegt að geta stutt myndarlega við það
verkefni.
Verkefnið Brothættar byggðir miðar að víðtæku samráði og
því að virkja þekkingu og getu íbúa byggðarlaga til að móta
framtíðarsýn, markmið og lausnir. Enn fremur að virkja frumkvæði og
samtakamátt íbúa og auka vitund þeirra um eigin þátt í þróun
samfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir Alda Marín Kristinsdóttir (aldamarin@austurbru.is) verkefnastjóri verkefnisins í síma 847-6887.