Auglýsing frá UMFB. Mikilvægt að fá sem flesta félaga til þess að mæta og ákveða framhaldið varðandi Fjarðarborg.
2 AÐALFUNDIR UMFB 13/6 kl. 21:00
Fundirnir verða haldnir fimmtudaginn 13. júní kl. 21:00 hvor á eftir öðrum. Samþykki þessarra tveggja aðalfunda er forsenda þess að
UMFB gefi Borgarfjarðarhreppi 48% hlut sinn í Félagsheimilinu Fjarðarborg.
Dagsskrá fyrri fundar
1. Ársreikningur 2011 lagður fram
2. Skráning nýrra félaga
3. Umræða og atkvæðagreiðsla um þá tillögu sem fyrir fundinum liggur að eignarhlutur UMFB í Félagsheimilinu Fjarðarborg verði
gefinn Borgarfjarðarhreppi með ákveðnum skilyrðum.
Dagskrá síðari fundar
1. Ársreikningur 2012 lagður fram
2. Umræða og atkvæðagreiðsla um þá tillögu sem fyrir fundinum liggur að eignarhlutur UMFB í Félagsheimilinu Fjarðarborg verði
gefinn Borgarfjarðarhreppi með ákveðnum skilyrðum.
3. Ný stjórn félagsins kosin.
Stjórn UMFB