Grunnskóli Borgarfjarðar eystra auglýsir eftir kennara
Grunnskólinn á Borgarfirði eystra er heimilislegur samkennsluskóli sem rekinn er í samstarfi við leikskóla og frístund. Í skólanum
eru nú 16 nemendur í 2.-9. bekk. Einkenni skólans sem við hlúum sérstaklega að eru sjálfbærni og góð tengsl við
grenndarsamfélagið, sögu þess og menningu. Við erum m.a. Grænfánaskóli og leggjum áherslu á umhverfisvitund og útikennslu
ásamt rými fyrir skapandi starf og sveigjanlega kennsluhætti.
Vegna breytinga vantar okkur kennara fyrir nemendur í 2.-5. bekk.Við leitum að kennara í hlutastarf en um er að ræða kennslu í verkgreinum,
bóklegum greinum og íþróttum í samstarfi við hina kennara skólans og smíði og val í 8.-9. bekk. Viðkomandi
þarf að geta hafið störf um áramót. Til greina kemur að ráða tvo aðila sem deila stöðunni með sér.
Menntun, reynsla og metnaður:
· Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu.
· Kennslureynsla er kostur, einnig þeir sem hafa reynslu af útikennslu og samþættingu námsgreina.
- Samstarfsvilji með fullorðnum og börnum nauðsynlegur sem og góð samskiptahæfni
- Áhugi á að vinna að uppbyggingu skóla og skólasamfélags
- Jákvætt hugarfar, ábyrgðarkennd, dugnaður og fagleg vinnubrögð ásamt áhuga á að samþætta námsgreinar er nokkuð
sem umsækjendur þurfa að hafa metnað fyrir
- Aðeins reglusamir einstaklingar koma til greina
- Starfið hentar konum og körlum
Umsækjendur skulu sýna fram á hreint sakavottorð eða veita heimild fyrir upplýsingaöflun úr sakaskrá.
Ljósrit af leyfisbréfi eða prófgráðum eða staðfesting á námi skal fylgja umsókn.
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2014.
Áhugasamir hafi samband við
Svandísi Egilsdóttur skólastjóra í síma 472-9938 eða 7717217
Umsókn ásamt meðmælum sendist til: Skólastjóri Svandís Egilsdóttir, Grunnskóla Borgarfjarðar eystra, 720
Borgarfjörður, eðaskolastjorigbe@ismennt.is
Við hlökkum til að heyra frá þér.