Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða lögfræðing á lögfræði- og velferðarsviði. Lögfræðingar sambandsins koma fram fyrir þess hönd við undirbúning lagafrumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla sem varða sveitarfélögin og vinna að upplýsingagjöf, ráðgjöf og fræðslu til sveitarfélaga. Lögfræðingurinn mun starfa ásamt öðrum lögfræðingum og sérfræðingum sviðsins að margþættum og síbreytilegum verkefnum, sem meðal annars varða skipulags-, umhverfis- og auðlindamál, skólamál, málefni félagsþjónustu sveitarfélaga og túlkun laga og reglna sem varða starfsemi sveitarfélaga.
Gerð er krafa um embættispróf í lögfræði eða meistarapróf í lögum, ásamt góðri þekkingu á stjórnsýslurétti. Reynsla af störfum á þeim málefnasviðum sem að ofan greinir er kostur, ásamt þekkingu og áhuga á málefnum sveitarfélaga. Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í framsetningu upplýsinga er skilyrði. Góð kunnátta í a.m.k. einu öðru Norðurlandamáli og ensku er æskileg, sem og góð tölvuþekking, bæði til öflunar og úrvinnslu upplýsinga.
Leitað er að hæfum einstaklingi sem hefur til að bera frumkvæði, sjálfstæði, þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og skipulagshæfileika. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins, að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda en einnig á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir við ráðningu.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs, netfang: gudjon.bragason@samband.is, Valur Rafn Halldórsson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang: valur@samband.is, eða í síma 515-4900.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um Samband íslenskra sveitarfélaga eru á heimasíðunni, www.samband.is. Þar er einnig að finna starfslýsingu fyrir starfið og mannauðsstefnu sambandsins.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf lögfræðings á lögfræði- og velferðarsviði, berist eigi síðar en mánudaginn 9. desember nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti til samband@samband.is.
Upphafleg auglýsing birtist á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga, sjá hér.