Grunnskóli Borgarfjarðar eystra er lítill samrekinn leik- og grunnskóli. Hann er Grænfánaskóli, notar fjölbreyttar kennsluaðferðir, byrjendalæsi, samþættingu námsgreina og útikennslu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
-Leyfisbréf grunnskólakennara
-Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum
-Hæfni í mannlegum samskiptum og góðri skipulagshæfni
-Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Umsóknir berist fyrir 20. apríl til skólastjóra Grunnskóla Borgarfjarðar eystra á netfangið skolastjoribe (hjá) simnet.is ásamt ljósriti af leyfisbréfi og prófgráðum. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar veitir María Ásmundsdóttir. skólastjóri í s: 472-9938 og skolastjoribe (hjá) simnet.is.