Við auglýsum eftir að ráða frá næsta skólaári (1. ágúst 2015)
· Kennara sem getur tekið að sér þá tíma sem áætlaðir eru í sérkennslu í íslensku á öllum
stigum.
· Kennara sem getur tekið að sér kennslu í stærðfræði á elsta stigi, en á öllum stigum: verkgreinar, raungreinar, listgreinar,
skólaíþróttir (ekki sund), pólsku og valgreinar.
· Umsjónarkennara á yngra- og miðstigi sem kennir fjölmargar kennslugreinar, bóklegar og verklegar á því stigi.
· Leikskólakennara vantar í hlutastarf á leikskóladeildina vegna fjölgunar barna á deildinniUm er að ræða samtals tvær og
hálfa stöðu við grunnskólann.
Menntun, reynsla og metnaður:
· Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu
· Kennslureynsla er kostur, einnig þeir sem hafa reynslu af útikennslu og samþættingu námsgreina
- Samstarfsvilji með fullorðnum og börnum nauðsynlegur sem og góð samskiptahæfni
- Áhugi á að vinna að uppbyggingu skóla og skólasamfélags
- Jákvætt hugarfar, ábyrgðarkennd, dugnaður og fagleg vinnubrögð ásamt áhuga á að samþætta námsgreinar er nokkuð
sem umsækjendur þurfa að hafa metnað fyrir
- Aðeins reglusamir einstaklingar koma til greina
- Starfið hentar konum og körlum
Umsækjendur skulu sýna fram á hreint sakavottorð eða veita heimild fyrir upplýsingaöflun úr sakaskrá.
Ljósrit af leyfisbréfi eða prófgráðum eða staðfesting á námi skal fylgja umsókn.
Umsóknarfrestur er til 5.maí 2015.
Áhugasamir hafi samband við
Svandísi Egilsdóttur skólastjóra í síma 472-9938 eða 7717217 sem veitir góðfúslega allar nánari upplýsingar um
tímafjölda í einstaka greinum og fl..
Umsókn ásamt meðmælum sendist til: Skólastjóri Svandís Egilsdóttir, Grunnskóla Borgarfjarðar eystra, 720
Borgarfjörður, eða skolastjorigbe@ismennt.is
Við hlökkum til að heyra frá þér.