Vikuna 16. – 20. september munu tónleikar Tónlistar fyrir alla hljóma um Austur og Norðausturland.
Dúó Stemma og Páll og Laufey munu ferðast á milli grunnskóla og leika fyrir nemendur. Tónleikarnir á Borgarfirði verða 17. september
í skólanum kl 8:10 og eru allir velkomnir.
Tónlist fyrir alla leitast við að bjóða upp á vandaða skólatónleika fyrir börn þar sem skemmtun og menntun haldast í hendur.
Við bjóðum upp á fjölbreytta tónlist í hæsta gæðaflokki í flutningi atvinnutónlistarfólks. Upplifun barnanna af
tónleikunum er lykilatriði og áhersla er lögð á að hún verði sem allra best.
Samtals verða haldnir 25 tónleikar í þessari viku. Fyrstu tónleikarnir hefjast á Egilsstöðum og í Fellabæ. Dúó Stemma með
þeim Herdísi Önnu Jónsdóttur víóluleikara og Steef van Oosterhout slagverksleikara mun aka norðurfyrir og enda ferð sína á Akureyri
en Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari keyra firðina einn af öðrum og enda á Hofgörðum í
Öræfasveit í vikulok.
Hér er því ströng og skemmtileg tónleikadagskrá framundan og vonandi að hver einsti nemandi fái notið.