Þeir eru margir þessir alþjóðadagar
sem hægt er að halda hátíðlega jafnvel vikulega ef vill. Sumir þykja okkur kærkomnari en aðrir og það á við
alþjóðadag eldri borgara sem var haldinn hátíðlegur þann 1. okt. s.l. Okkur hefur alltaf fundist ánægjulegt að fá eldriborgara
í heimsókn til okkar í skólann hvort sem er á skemmtanir, spilakvöld eða annað sem skólinn stendur fyrir svo við buðum, þennan
dag, borgfirskum "heldri borgurum" að koma til okkar. Þeir áttu með okkur góða stund og hlýddu á upplestur, söng, hljóðfæraleik og
horfðu á myndasýningu, að lokum þáðu þeir veitingar. Við viljum þakka þeim kærlega fyrir heimsóknina, vonandi sjáum
við ykkur aftur að ári.
Hérna má sjá myndir frá þessum
degi.