Göngufólk tilbúið í slaginn.
Göngum í skólann er hluti af verkefninu ,,Virkar og öruggar leiðir í skólann" sem
nýtur stuðnings Go for Green og samstarfsaðila
Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða á annan virkan
hátt til og frá skóla. Íslensk börn og fullorðnir sem taka þátt í verkefninu slást þar með í för með
mörgum öðrum þjóðum heims, svo sem Áströlum, Brasilíumönnum, Kýpurbúum, Bretum, Írum, Nýsjálendingum,
Svisslendingum og Bandaríkjamönnum.
Að hausti ár hvert, eru börn hvött sérstaklega til að nýta sér virkan samgöngumáta, svo sem göngu, til að ferðast til og
frá skóla. Vegna aðstæðna hérlendis hefur undirbúningshópur verkefnisins ákveðið að hvetja skóla til að byrja
verkefnið í september og ljúka því á alþjóðlega göngum í skólann deginum í byrjun október. Markmið
verkefnisins er meðal annars að:
- Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og
fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
- Heilbrigður lífsstíll fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II
og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.
- Minni umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft og
öruggari og friðsælli götur og hverfi.
- Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.
Samfélagsvitund eykst.
- Kennir reglur um öryggi á göngu og hjóli:
Í tilefni af þessu átaki höfum við, ár hvert, blásið til heljarinnar göngu og boðið foreldrum/forráðamönnum að
slást með í för. Að þessu sinni fórum við í skrúðgöngu og höfðum með okkur skilti með slagorðum. Þar
mátti sjá setningar s.s. - að ganga bætir, hressir, kætir, - að ganga það er gaman, - það dregur úr streitu, - að ganga með
góðum vinum, - að ganga gefur mér úthald, - það er smitandi - og - you'll never walk alone. Við gengum sem leið lá niður í
kaupfélag og STÓRAN hring í búðinni. Þaðan fórum við niður eftir til Kalla en þar er nú gaman að ganga því
ranghalarnir eru óendanlegir. Næst var farið á Heiðina og arkað í gegnum Áhaldahúsið með viðkomu á kaffistofunni þar sem
við hittum Jón sveitarstjóra. Að lokum var farið í leiki á tjaldstæðinu þar til Jóffa og Helga kölluðu á okkur í
kakó og kleinur sem þær höfðu galdrað fram inni í tjaldstæðishúsinu. Þetta var nú góður dagur eins og sjá
má á þessum
myndum.