Við óskum eftir að ráða frá næsta skólaári (1. ágúst
2015)
Umsjónarkennara á yngra- og miðstigi sem kennir
fjölmargar kennslugreinar, bóklegar og verklegar á því stigi. (Fullt starf)
Kennara sem getur tekið að sér þá tíma sem áætlaðir eru í
sérkennslu í íslensku á öllum stigum, pólskukunnátta kostur.(Hlutastarf)
· Kennara sem getur tekið að sér kennslu ýmissa greina í eldri og yngri deild (Hlutastarf)
· Leikskólakennara vantar einnig í hlutastarf á leikskóladeildina.
Menntun, reynsla og metnaður:
· Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu
· Kennslureynsla er kostur, einnig þeir sem hafa reynslu af útikennslu og samþættingu
námsgreina
- Samstarfsvilji með fullorðnum og börnum nauðsynlegur sem og góð samskiptahæfni
- Áhugi á að vinna að uppbyggingu skóla og skólasamfélags
- Jákvætt hugarfar, ábyrgðarkennd, dugnaður og fagleg vinnubrögð ásamt áhuga á að samþætta
námsgreinar er nokkuð sem umsækjendur þurfa að hafa metnað fyrir
- Aðeins reglusamir einstaklingar koma til greina
- Störfin henta konum og körlum
Umsækjendur skulu sýna fram á hreint sakavottorð eða veita heimild fyrir upplýsingaöflun úr
sakaskrá.
Ljósrit af leyfisbréfi eða prófgráðum eða staðfesting á námi skal fylgja
umsókn.
Umsóknarfrestur er til 20.júlí 2015.
Áhugasamir hafi samband við
Svandísi Egilsdóttur skólastjóra í síma 7717217 sem veitir góðfúslega allar nánari upplýsingar um
tímafjölda í einstaka greinum og fl..
Umsókn ásamt meðmælum sendist til: Skólastjóri Svandís Egilsdóttir, Grunnskóla Borgarfjarðar eystra,
720 Borgarfjörður, eða skolastjorigbe@ismennt.is
Við hlökkum til að heyra frá þér.