02.06.2016
Við lok skólaársins 2014-2015 var okkur í skólanum ljóst að
við höfðum fengið veglegan styrk frá Sprotasjóði til að efla fjölbreytta
kennsluhætti í grunnskólanum og um leið gera nemendur sjálfstæðari og ábyrgari
námsmenn. Það er því ekki úr vegi í lok þessa skólaárs að segja frá því hvernig
styrkurinn nýttist okkur og hvað við höfum fengist við á skólaárinu.
31.05.2016
Í gær voru skólaslit og útskrift hjá okkur
20.05.2016
Í haust settu nemendur niður á blað hugmyndir af verkefnum sem þau vildu vinna í umhverfismenntartímum í vetur.
19.05.2016
Föstudaginn 20. maí verður opið hús í skólanum klukkan 11:00 en þá ætla nemendur að kynna viðfangsefni þau sem þau hafa unnið að nú í valvikunni. Nemendur yngri deildar hafa unnið að verkefni með svokallaðri leitarnámsaðferð en þá byrja nemendur á að spyrja spurningar sem þau vilja finna svar við. Þar sem að þetta er valvika réðu nemendur alfarið viðfangsefnum sínum. Því næst koma nemendur með tilgátu að svari og ákveða með hvaða hætti þeir kynna sér málið og í lok vikunnar kynna allir niðurstöður sínar. Þessi aðferð hvetur börn til vísindalegrar nálgunar og er ætlað að auka ábyrgð þeirra á eigin námi ásamt því að efla nemendalýðræði við skólann.Nemendur eldri deildar hafa einnig unnið að sjálfvöldum verkefnum þessa vikuna í samræmi við áhuga sinn. Kaffi á könnunni, allir velkomnir
18.05.2016
Í dag var efnt til ræðukeppni í söng og samskiptatíma. Nemendum var skipti í tvo hópa þar sem þeir mæltu með eða á móti Bræðslunni eftir atvikum. Þetta var skemmtilegt æfing þar sem rökfærsla, framsögn og tjáning var þjálfuð.
18.05.2016
(frétt skrifuð af ruv.is) Fáir
voru eins forugir um hvítasunnuhelgina og tveir menn sem réðust í að
toga aur upp úr munna Skriðnahellis milli Borgarfjarðar eystri og
Njarðvíkur. Vopnaðir skóflu og 30 lítra plastbrúsa tókst þeim að komast í
hellinn sem óttast var að hefði mögulega eyðilagst fyrir 20 árum. Þar
fundu þeir kerti og pilsnerdós.
12.05.2016
Við á leikskólanum höfum aldeilis haft í mörgu að snúast
08.05.2016
Staða skólastjóra við grunn- og leikskólann er laus til umsóknar,
sjá nánar á þessum tengli hér
Áhugasamir hafi samband við Jón Þórðarson sveitastjóra 472-9999
26.04.2016
Varðliðar umhverfisins, það erum við!
Á Degi umhverfisins 25.apríl skrapp hann Bóas okkar suður til Reykjavíkur til að taka á móti viðurkenningu fyrir hönd allra nemenda skólans en nemendur okkar hafa verið útnefnd Varðliðar umhverfisins 2016 af umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Náttúruskóla Reykjavíkur og Landvernd.
Þennan heiður hljóta krakkarnir okkar fyrir ljósmyndaverkefni sem þau hófu í gönguferðinni til Loðmundarfjarðar í haust og unnu svo áfram í umhverfismenntunartímum. Verkefnið var sent inn í þessa verkefnasamkeppni sem er á landsvísu en keppnin hefur það að markmiði að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfismálum og vekja sýn ungs fólks á þau.
Sjá nánar hér:
http://www.ruv.is/frett/vidurkenningar-afhentar-a-degi-umhverfisins
19.04.2016
Sumardaginn
fyrsta 21. apríl ætla Borgfirðingar að fagna komu lundans með móttöku við
Hafnarhólma kl. 20.