19.04.2016
Íbúafundur í Fjarðarborg 25. apríl kl. 17:00
15.04.2016
Á fimmtudagskvöld var bekkjarkvöld hjá 10. bekk
14.04.2016
Vorskóli elstu nemenda á leikskólanum hófst í dag en þau munu verja fimm dögum með nemendum yngri deildar grunnskólans nú fram á vorið til að aðlagast grunnskólastarfinu. Aðlögunin á sér reyndar stað allt skólaárið því samstarf á milli skólastiganna er mikið hér á Borgarfirði..... en það er aðeins öðruvísi að vera boðin velkomin í heimastofuna, fá eigið borð og skólaverkefni, svo ekki sé talað um að leika við eldri nemendur í frímínútum og sitja með þeim til borðs í matartímanum. Nemendur grunnskólans skiptast á að vera skólavinir gestanna og það þýðir að þau eldri fá það mikilvæga hlutverk að hjálpa til ef á þarf að halda og vera sérstaklega góður vinur þeirra í frímínútum.
08.04.2016
Borgarfjarðarhreppur auglýsir
07.04.2016
Elstu börnin á leikskólanum eru markvist og ómarkvist að fást við stærðfræði
23.03.2016
Framkvæmdir út í Höfn - Fer þessi framkvæmdagleði ekkert að taka enda!? Vonandi ekki!
23.03.2016
Átta verkefni á Austurlandi fá samtals rúmar 46 milljónir króna úr
Framkvæmdasjóði en tilkynnt var um 600 milljóna úthlutun í morgun. Hæsti
styrkurinn hérna eystra fer til uppbyggingar í Hafnarhólma hérna á Borgarfirði.
18.03.2016
Páskafrí í leik-og grunnskólanum hefst eftir föstudaginn 19.mars.Skólastarf í leikskólanum hefst 28.mars en í grunnskólann mæta nemendur miðvikudaginn 29.mars og verður þá kennsla samkvæmt stundaskrá. Gleðilega páska og hafið það yndilegt í fríinu
18.03.2016
Mikið svakalega var gaman á skíðum. Nemendur drifu sig í Oddskarðið í blíðskaparveðri 17.mars. Flestir voru að renna sér í fyrsta skipti og þurftu sumir að yfirstíga allskonar tilfinningar til að koma sér af stað. Í lok dagsins voru allir farnir að renna sér með bros á vör.
18.03.2016
Nemendur í 3., 4. og 5. bekk gerðu gjörning í útikennslutofunni 18.mars 2016 í tilefni af alþjóðadegi til afnáms kynþáttamisréttis 21.
mars en dagurinn er einnig alþjóðadagur ljóðsins.
Af þessu tilefni komu þau með bangsana sína í skólann. Kveikt var bál og böngsunum raðað í
kring um bálið, krakkarnir skrifuðu ljóð um
vináttuna eða frið en fyrr um morguninn höfðu þau velt fyrir sér andheitum
orðsins kynþáttafordómar. Ljóðin lásu þau upp fyrir eldri nemendur og aðra
áheyrendur í lok tímans. Þau höfðu sjálf komist að því að þau gætu notað bangsa sem tákn fjölbreytileika og þeir eru í þessum gjörningi vísun til
mikilvægi fjölbreytileikans í samfélagi okkar
og mikilvægi þess að afnema misrétti. Bangsinn hefur einnig á síðustu misserum
orðið tákn sakleysisins, barna á flótta og mannúðar.
Ljóðin má lesa hér.