Fréttir

Nýjar netauglýsingar um Borgarfjörð og Víknaslóðir

Nú í sumar hefur verið unnið að því að búa til netauglýsingar fyrir Borgarfjörð og Víknaslóðir, en það eru Ferðafélag Fljótsdalshéraðs Ferðamálahópur Borgarfjarðar sem standa í sameiningu fyrir þessari framleiðslu.

Breiðavíkurferð 28. - 29. ágúst 2013

Haustferðin okkar að þessu sinni tókst með miklum ágætum. 

Haustferð til Breiðuvíkur

Á morgun 28. ágúst  ætlum við nemendur 1. - 10. bekkjar og kennarar í Grunnskólanum að rölta til Breiðuvíkur

Gleðifréttir frá Vegagerðinni

Vegagerðin hefur ákveðið að frá og með haustinu verði vetrarþjónustudögum á Vatnsskarði fjölgað úr fjórum í sex. Þetta þýðir að Skarðinu verður haldið opnu alla daga vikunnar fyrir utan laugardaga.

Tónleikum í Loðmundarfirði aflýst

Vegna óvenju slæms veðurútlits um helgina, hefur verið ákveðið að fella niður fyrirhugaða tónleika með Jóni Ólafs og Eyjólfs í Loðmundarfirði á laugardaginn.

Nýtt upplag af disknum Borgfjörð kominn í hús

Nú fyrr í sumar kom út diskur frá Magna sem inniheldur lög sem eiga það öll sameiginlegt að hafa sterka borgfirska tengingu. Þetta eru ýmist borgfirsk lög, borgfirskir textar eða bara lög sem hafa verið mikið sungin á mannamótum hér í firðinum gegnum árin.

Opinn fundur hjá Framfarafélaginu

Boðað er til opins fundar í Framfarafélagi Borgarfjarðar klukkan 20:00 þriðjudaginn 27. ágúst í Fjarðarborg. Vinna starfshópa og stjórnar verður kynnt. Auk þess verður rætt um væntanlega komu fjölmiðla til Borgarfjarðar sem ætla að fjalla um starf Framfarafélagsins og uppbygginguna á Borgarfirði.

Minnum á tónleikana í Loðmundarfirði

Nú er bara rétt rúm vika í hina árlegu tónleika í Loðmundarfirði. Fjölmennum og höfum gaman líkt og fyrri ár. Aðgangur valfrjáls

Ungmennaráðstefna Framfarafélags

Laugardaginn 17. ágúst stóð Framfarafélag Borgarfjarðar fyrir ungmennaráðstefnu sem haldin var í Fjarðarborg. Ráðstefnan var ætluð ungu fólki á aldrinum 13-20 ára og var ágætlega sótt.

Samkeppni um bætta aðstöðu í Stórurð og nágrenni Dyrfjalla

Sveitarfélögin Fljótsdalshérað og Borgarfjarðarhreppur í samstarfi við Arkitektafélag Íslands standa fyrir hugmyndasamkeppni um bætta aðstöðu fyrir ferðafólk í Stórurð og næsta nágrenni Dyrfjalla. Samkeppnin er öllum opin.