15.07.2013
Söngskemmtun í Álfacafé fimmtudaginn 25. júlí kl. 20.30. Eins og undanfarin ár verður söngskemmtun í Álfacafé
í upphafi Bræðsluhelgarinnar. Að þessu sinni kemur söngkvartett, skipaður þeim Garðari Thór Cortes, Gissuri Páli Gissurarsyni,
Bergþóri Pálssyni og Viðari Gunnarssyni. Jóhann G. Jóhannsson leikur á píanó.
10.07.2013
Stofnfundur félags um samfélagsþróun
Boðað hefur verið til stofnfundar í félagi um samfélagsþróun á Borgarfirði eystra. Fer fundurinn fram í Fjarðarborg
miðvikudagskvöldið 17. júlí klukkan 20:00.
08.07.2013
Messað verður í Klyppstaðarkirkju sunnudaginn 14. júlí kl 14:00
03.07.2013
Spennandi handverksnámskeið framundan á Borgarfirði
01.07.2013
Áhöfnin á Húna verður með tónleika á Borgarfirði núna á fimmtudaginn og er mikil eftirvænting í firðinum fyrir komu
þessara snillinga. Við vonum að sem flestir láti sjá sig og bjóði þau hjartanlega velkomin og styrki í leiðinni slysavarnarasveitina okkar.
Að loknum tónleikum verður svo rífandi stemning í Fjarðarborg eitthvað fram eftir kvöldi þar sem Magni & the Hafthors ætla að telja
í nokkru vel valin lög.
24.06.2013
Ungmennafélag Borgarfjarðar ætlar að bjóða upp á íþróttaæfingar fyrir börn á aldrinum 5-16 ára í
sumar.
20.06.2013
Þá er komið að fyrstu stórtónleikum sumarsins hjá Já Sæll í Fjarðarborg. Við
byrjum þetta með stæl og bjóðum á svið okkar allra besta vin, Jónas Sigurðsson ásamt snillingnum Valdimar Guðmundssyni. Þeir
félagar voru með stórbrotna tónleika í Tónleikamaraþoni Jónasar síðastliðið sumar og vegna fjölda áskoranna
ætla þeir að endurtaka leikinn föstudaginn 28. júní.
14.06.2013
Við hjá UMFB ætlum að efna til hátíðarhalda nú á mánudaginn og fagna þjóðhátíðardeginum með
stæl. Við vonum að sem flestir komi til með að mæta í rífandi stuði. Dagskráin verður á þennan veg:
13.06.2013
Þann 17. Júní bjóða Álfheimar uppá kaffihlaðborð frá kl. 15:00 - 17:00.
13.06.2013
Nú á föstudaginn (14. júní) ætlum við að hafa spilakvöld í Álfacafé þar sem verður spiluð félagsvist.
Fjörið byrjar klukkan 20:00. Væri ekki tilvalið að kom og fá sér súpu og grípa svo í spil?