Fréttir

ÖLL DAGSKRÁIN TILKYNNT

Jæja, þá er nú farið að styttast í Bræðsluna og spennan orðin gífurleg í firðinum. Hljóðkerfið kom í dag en það sem er ennþá ánægjulegra er að veðurspáin er svo aldeilis búin að snúast okkur í hag og lítur þetta allt saman vel út. Hér er hægt að sjá alla dagskránna frá miðvikudegi til Sunnudags. Tónleikar í Álfacafé, Fjarðarborg og að sjálfsögðu í Bræðslunni. Að gefnu tilefni er það tekið fram að miði í Bræðsluna gildir ekki á "OFF VENUE" viðburði en miðaverði er þar stillt í hóf

Dagskráin í Fjarðarborg um Bræðsluhelgina

Jæja, þá er dagskráin í Fjarðarborg komin á hreint og er hún stórglæsileg. Tónleikar út í eitt og eitthvað fyrir alla. Af gefnu tilefni skal það tekið fram að miðinn á Bræðsluna gildir ekki á þessa viðburði en miðaverði er stillt í hóf.

Hvalreki á fjörur Hofstrendinga

Hún er ekkert sérstaklega falleg sjónin sem blasir við manni rétt utan við ölduhamarinn, en þar hefur rekið að landi Búrhvalstarf. Hvalurinn sést vel ef maður labbar spölkorn frá veginum mitt á milli Kolbeinsfjöru og endurvarpsmastursins. 

PubQuiz í Fjarðarborg

Pubquis hjá Já Sæll Ehf Fjarðarborg á laugardagskvöld! Ásta Hlín Magnúsdóttir og Eyrún Hrefna Helgadóttir verða á spyrilsbuxunum og bera þar upp áleitnar spurningar um lífið og tilveruna. Skúli Sveinsson sem rekur Gistiheimilið Borg verður hinsvegar í sparibuxunum og afgreiðir bjór fram eftir nóttu. Upphitun hefst kl. 22:00 og keppnin um hálftíma síðar. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir

Söfnun brotajárns

Brotajárnspressa frá Furu ehf. verður staðsett á Borgarfirði 4-8 júlí. Fjarlægður verður haugur úr námu við flugvöll og því svæði lokað sem brotajárnssvæði. Brotajárnsgámur verður staðsettur í nágrenni Áhaldahúss eftirleiðis.

Skriðurnar og Naddi

Þessa dagana er verið að vinna að skilti sem á að koma út í Skriður, en þar er fjallað um Skriðunar og söguna um óvættinn Nadda.

Kalli Sveins fékk hvatningarverðlaun Þróunarfélagsins

Karl Sveinsson, útgerðarmaður á Borgarfirði, fékk hvatningarverðlaun Þróunarfélags Austurlands þegar þau voru afhent fyrir skemmstu. Karl hefur stundað útgerð á Borgarfirði í 35 ár en hann hefur einnig spreytt sig í öðrum atvinnugreinum, til dæmis gæsarækt og kaffihúsarekstri.

Danskir þjóðdansarar á Borgarfirði

Miðvikudaginn 6. júlí verður hópur danskra þjóðdansara á ferð á Borgarfirði.Þetta er 30 manna hópur frá Fjóni, hópurinn kennir sig við bæinn Gudbjerg og heitir “Gudbjerg folkedansere”

Afmælisfrétt - Afmælisdansleikur

Í tilefni skyndilegrar öldrunar minnar býð ég öllum Borgfirðingum, gestum og gangandi á dansleik í Fjarðarborg frá miðnætti laugardagskvöldið 25. júní og fram eftir nóttu. Endilega látið sjá ykkur! Baddi í Árbæ

Fágætar menningarminjar dregnar fram í dagsljósið

Í vel verðveittri videóspóluhilli í Sætúni leyndist þessi upptaka sem er frá því seint á síðastliðinni öld, eða frá árinu 1991.