25.07.2011
Sveitjastjóri, Oddviti, verkstjóri, starfsmenn áhaldahús og vinnuskólinn stóðu fyrir utan áhaldahúsið kl 10.00 í morgun
og minntust með mínútu þögn þeirra sem féllu í Ósló og útey á föstudaginn.
25.07.2011
Jæja, þá er lífið komið í eðlilegar skorður hérna í Borgarfirði eftir Bræðsluhelgina 2011. Það verður að
segjast að þessi hátíð heppnaðist alveg einstaklega vel í nær alla staði þau auðvitað megi finna eitthvað sem má betur
fara.
20.07.2011
Minnum sérstaklega á tónleika Jóns Arngríms og Valla Skúla í Fjarðarborg í kvöld kl 20:30 þar sem þeir félagar
halda upp á 20 ára afmæli Darara(m). Sjáumst hress í Fjarðarborg.
18.07.2011
Það er nóg að gera í framkvæmdum í firðinum þessa dagana eins og undanfarin misseri. Nú í síðustu viku bættust
tvö hús við í þorpið og standa þau úti á bökkum, milli Bakkavegs 1 og Skálabergs. .
18.07.2011
Eftir langa og stranga yfirlegu hefur dómnefnd Ljósmyndakeppni Bræðslunnar komist að niðurstöðu.
Sigurvegarinn í ár er Ingunn Þorvarðardóttir og óskum við henni hjartanlega til hamingju með það. Fjölmargar myndir bárust en
þessi þótti fanga vel stemmarann í fyrra, þegar Naglbítarnir fóru á kostum.
17.07.2011
Jæja, þá er nú farið að styttast í Bræðsluna og spennan orðin gífurleg í firðinum. Hljóðkerfið kom í dag
en það sem er ennþá ánægjulegra er að veðurspáin er svo aldeilis búin að snúast okkur í hag og lítur þetta
allt saman vel út. Hér er hægt að sjá alla dagskránna frá miðvikudegi til Sunnudags. Tónleikar í Álfacafé, Fjarðarborg
og að sjálfsögðu í Bræðslunni. Að gefnu tilefni er það tekið fram að miði í Bræðsluna gildir ekki á "OFF VENUE"
viðburði en miðaverði er þar stillt í hóf
08.07.2011
Jæja, þá er dagskráin í Fjarðarborg komin á hreint og er hún stórglæsileg. Tónleikar út í eitt og eitthvað
fyrir alla. Af gefnu tilefni skal það tekið fram að miðinn á Bræðsluna gildir ekki á þessa viðburði en miðaverði er stillt í
hóf.
01.07.2011
Hún er ekkert sérstaklega falleg sjónin sem blasir við manni rétt utan við ölduhamarinn, en þar hefur rekið að landi Búrhvalstarf.
Hvalurinn sést vel ef maður labbar spölkorn frá veginum mitt á milli Kolbeinsfjöru og endurvarpsmastursins.
01.07.2011
Pubquis hjá Já Sæll Ehf Fjarðarborg á laugardagskvöld! Ásta Hlín Magnúsdóttir og Eyrún Hrefna Helgadóttir verða
á spyrilsbuxunum og bera þar upp áleitnar spurningar um lífið og tilveruna. Skúli Sveinsson sem rekur Gistiheimilið Borg verður hinsvegar í
sparibuxunum og afgreiðir bjór fram eftir nóttu. Upphitun hefst kl. 22:00 og keppnin um hálftíma síðar. Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir
29.06.2011
Brotajárnspressa frá Furu ehf. verður staðsett á Borgarfirði 4-8 júlí.
Fjarlægður verður haugur úr námu við flugvöll og því svæði lokað sem brotajárnssvæði. Brotajárnsgámur
verður staðsettur í nágrenni Áhaldahúss eftirleiðis.