24.05.2011
Í vetur hefur þemadögunum verið dreift yfir allt skólaárið
24.05.2011
Nemendur grunnskólans fóru í vorferð til Mývatns
24.05.2011
Laugardaginn 7. maí var sýning á verkum nemenda.
23.05.2011
Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að senda inn myndir í ljósmyndakeppni Bræðslunnar en ekki hafa mjög margir sent inn myndir
18.05.2011
Hérna geta talnaglöggir menn og aðrir áhugasamir skoðað ársreikning sveitarfélagsins fyrir síðastliðið ár.
18.05.2011
Ferðamálahópurinn er nú kominn með sér facebooksíðu. Smellið á linkinn og þá farið þið inn á
síðuna og smellið þar á "like" þar með fáið þið allar helstu fréttir og annað úr firðinum beint inn á
fésbókina ykkar.
17.05.2011
Það er okkur mikill heiður að tilkynna að búið er að ákveða tónleika með snillingnum Kristjáni Kristjánssyni, eða KK eins
og hann er betur þekktur í Loðmunarfirði Laugardaginn 27. ágúst.
17.05.2011
Jæja þá er farið að styttast í miðsöluna á Bræðsluna og hafa vinir Bræðslunnar á facebook fengið sérstakt
boð um að kaupa miða í forsölu. Dagskráin lítur einstaklega vel út og ljóst að við erum að fá góða tónleika
í ár eins og við var að búast af tónleikahöldurum. Hér í fréttinni er hægt að horfa á myndbönd með
listamönnunum og hvetjum við alla til þess að kynna sér þá vel, sérstaklega Glen Hansard en hann hlaut Óskarsverðlaun fyrir ekki svo
löngu fyrir tónlist sína. Hann hefur starfað í hinum þekkta dúett "The Swell Season" og verið forsprakki írsku sveitarinnar The Frames.
16.05.2011
Rannveig Þórhalls Árna Halldórs sendi mér þessar myndir í dag og vildi að fá að vita eitthvað um þær, þ.e.a.s ca.
hvaða ár þetta er og hverja við gætum mögulega séð á myndunum. Geta dyggir lesendur síðunnar verið svo vinsamlegir að skrifa
eitthvað um þær hér fyrir neðan. Með kærri fyrirfram þökk, fréttasíðan
16.05.2011
Það er ekki laust við að það sé einkennileg staða á Borgarfirði þessa dagana. Kaupfélagið er fullt af atvinnuauglýsingum og
er erfitt reynist að manna störf sumarsins í firðinum nema með því að flytja inn vinnuafl utan fjarðar en í sjálfu sér ekkert nema
gott um það að segja að fá nýtt fólk til fjarðarins. En þá er aftur á móti komið upp það vandamál að
ekkert húsnæði er til í firðinum fyrir þá sem vilja koma hingað til þess að vinna.