07.05.2015
Í dag hófst valvika í skólanum okkar en í þeirri viku hafa nemendur kosið sér valgrein eða greinar til að vinna að næstu daga.
Nemendur eldri deildar ákváðu í sameiningu og samráði við kennara að matreiðsla yrði aðalviðfangsefni þeirra en krakkarnir
í yngri deild taka nokkur fög fyrir og munu vinna í smíði og myndlist, leiklist og tónlist, þau fara í hjólreiðatúr með nesti
ef veðurr leyfir á þriðjudag og ljúka sinni valviku með því að fá stutt námskeið í Taekwondo.
Valvikan er liður í að auka fjölbreytta kennsluhætti við skólann og auka ábyrgð nemenda á eigin námi. Í þessu verkefni
er nemendalýðræðið sannarlega við völd en jafnframt gera nemendur og kennarar kröfur um markvissa vinnu og árangur.
Valviku lýkur miðvikudaginn 13.maí með kynningu á opnu húsi milli
13:00 og 14:00 en á þessa kynningu eru allir boðnir velkomnir. Hér munu nemendur kynna verkefnin og það sem þau hafa haft fyrir stafni dagana á
undan.
Opna húsið okkar er jafnframt þátttaka okkar í verkefninu List án
landamæra.
En nánar um valvikuna í lok hennar og þá væntanlega fleiri
myndir!
06.05.2015
Við höfum haft af því áhyggur hvað grænfáninn okkar endist illa.
06.05.2015
Í lok apríl varð 100 % fjölgun á leikskólanum
23.04.2015
Það er gaman að segja frá því að skólinn fékk á dögunum umtalsverða upphæð í styrk til að efla
fjölbreytta kennsluhætti í skólanum og mun sá styrkur nýtast okkur vel, ekki síst nemendum. Styrkurinn er úr Sprotasjóði Mennta- og
menningarmálaráðuneytisins en markmið sjóðsins í ár var að styrkja sérstaklega verkefni sem miðuðu að aukinni ábyrgð
nemenda á eigin námi útfrá styrkleikum þeirra og áhugasviði, efla hagnýtt læsi á öllum námssviðum og auka
fjölmenningarlegt skólastarf. Okkar verkefni heitir: Fjölbreyttir kennsluhættir, og miðar að því að auka fjölbreytt og fagleg vinnubrögð,
efla ábyrgð og styrkleika nemenda í náminu ásamt því að bæta aðbúnað og úrræði okkar til kennslu. Það
er mjög ánægjulegt að við séum í hópi þeirra þriggja skóla á Austurlandi sem fengu styrk. Vinir okkar á
Brúarási fengu einnig styrk sem og Nesskóli en alls fengu 27 grunnskólar styrk á öllu landinu. 172 umsóknir bárust sjóðnum og fengu 45
verkefni úthlutun. Við erum því afskaplega ánægð, stolt og þakklát. Sem hluti af okkar verkefni munu kennararnir kynna sér
fjölbreyttar kennsluaðferðir, meðal annars ætlum við í heimsókn í skólana á Þórshöfn á Langanesi og
Bakkafirði í þeim tilgangi.
Á myndinni sjást nemendur á yngra- og miðstigi búa til "eldgos" sem rennur úr eldfjöllunum sem þau gerðu í verkefni sem samætti
nánast allar námsgreinar á meðan á því stóð.
20.04.2015
Borgfjörð varð til á vormánuðum 2014 og er því að verða eins árs á næstunni. Hún hefur
komið víða fram og hefur meðal annars haldið tónleika á Café
Rósenberg og í Fjarðarborg á Borgarfirði eystra. Borgfjörð var einnig fyrsta band á svið á Bræðslunni síðasta
sumar.
17.04.2015
Sigurður Friðleifsson og Benedikt Guðmundsson frá Orkusetri á Akureyri ræða bætta orkunýtingu, einangrun, varmadælur,
hitastýringar og orkuverð.
17.04.2015
Lokahátíð Þjóðleiks á Austurlandi verður haldin í Sláturhúsinu á Egilsstöðum um helgina, 17.-18.apríl.
Alls verða 18 sýningar sýndar en 9 hópar á Austurlandi taka þátt að þessu sinni.
17.04.2015
Við auglýsum eftir að ráða frá næsta skólaári (1. ágúst 2015)
· Kennara sem getur tekið að sér þá tíma sem áætlaðir eru í sérkennslu í íslensku á öllum
stigum.
· Kennara sem getur tekið að sér kennslu í stærðfræði á elsta stigi, en á öllum stigum: verkgreinar, raungreinar, listgreinar,
skólaíþróttir (ekki sund), pólsku og valgreinar.
· Umsjónarkennara á yngra- og miðstigi sem kennir fjölmargar kennslugreinar, bóklegar og verklegar á því stigi.
· Leikskólakennara vantar í hlutastarf á leikskóladeildina vegna fjölgunar barna á deildinniUm er að ræða samtals tvær og
hálfa stöðu við grunnskólann.
30.03.2015
Við höfum verið óskaplega upptekin við alls konar skemmtilegt að undanförnu. Árshátíðina héldum við með pompi og prakt
laugardaginn 21.mars og þótti hún afar vel heppnuð.
24.03.2015
Þessa dagana, 19. 29. mars stendur yfir á Borgarfirði eystri verkefni sem ber nafnið 720° - Listaverksmiðja. Að verkefninu standa fyrirtækið Já
Sæll ehf og tónlistarmennirnir Jónas Sigurðsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir.