28.12.2012
Þeir sem hafa áhuga á að komast í pott og gufu yfir jólin og lappa aðeins upp á skrokkinn eftir átök undanfarinna daga geta haft samband
við Kristjönu sem fer með lyklavöld.
28.12.2012
UMFB boðar til almenns félagsfundar í Fjarðarborg sunnudaginn 30. desember kl. 16:00.
28.12.2012
Auglýsing frá Borgfirðingafélaginu
25.12.2012
Það er nokkuð ljóst að Borgfirðingar eru Jónasi Sigurðssyni mjög þakklátir fyrir hans framlag til menningarlífs á staðnum
á árinu, en Jónas hélt um 20 tónleika og spilaði fyrir vel á fimmta þúsund manns og átti stóran þátt í
frábæru tónlistarsumri hér á staðnum.
24.12.2012
Hér koma jólakveðjurnar sem okkur bárust til birtingar á síðunni. Gleðileg jól!
18.12.2012
Kæru Borgfirðingar
Við minnum á Litlu jól Grunnskólans á fimmtudaginn.
Dagskráin hefst í Fjarðarborg kl. 18:00. Þar munu nemendur bjóða upp á skemmtun með jólaívafi.
Að lokinni sýningu nemenda, verður dansað í kringum jólatréð og hver veit nema sveinar í rauðum fötum með
skotthúfu á höfði, leggi leið sína til okkar.
Eftir skemmtun verður boðið upp á kræsingar í boði foreldrafélagsins. Veitingar kr. 700,-. Frítt fyrir nemendur grunnskólans og
börn á leikskólaaldri.
Við vonumst til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Starfsfólk, nemendur, foreldrar og velunnarar Grunnskóla Borgarfjarðar eystri
14.12.2012
Veturinn getur verið alveg jafn dásamlegur og sumarið á Borgarfirði. Myndbandið sem hér fylgir var tekið á bryggjuendanum nó fyrir nokkrum
dögum.
13.12.2012
Í síðustu víku kom Baldur Pálsson slökkviliðsstjóri
12.12.2012
Við hjá borgarfjordureystri.is ætlum að gefa öllum kost á að senda inn jólakveðju og verða þær birtar á aðfangadag
hérna á síðunni.
11.12.2012
Þann 2. maí á komandi ári koma út 5 ný frímerki á Íslandi hjá Póstinum en þau eru tileinkuð fimm
framúrskarandi íslenskum hátíðum. Þetta eru Þjóðhátíð í Eyjum, Fiskidagurinn mikli á Dalvík, Hinsegin
dagar í Reykjavík, Aldrei fór ég suður á Ísafirði og síðan að sjálfsögðu Bræðslan á Borgarfirði
eystri.