20.02.2011
Um daginn hringdi maður í vefstjóra þessarar síðu og var frekar fúll og þá bara út af nafni hennar. Réttara væri að
við hefðum lénið www.borgarfjordureystra.is.
18.02.2011
Það er ekki hægt að segja annað en að nýja síðan virðist falla vel í kramið hjá lesendum ef marka má fjölda
heimsókna, skilaboð og mail frá hinum og þessum varðandi síðuna, og er það einstaklega ánægjulegt fyrir okkur sem að henni
standa.
16.02.2011
Þó þessi síða sé að mestu ætluð fréttum frá Borgarfirði, þá finnst okkur gaman að heyra af brottfluttum og
afkomendum þeirra sem eru að "meika það" fyrir utan rörahliðið.
15.02.2011
Síðast liðinn þriðjudag var spilað bingó í Fjarðarborg.
14.02.2011
Fréttasíðan fékk ábendingu um grein sem má lesa á netinu um landgræðsluverkefni Jóns á Sólbakka í Svartfellinu, en
hana má sjá á vef Landgræðslu Íslands.
11.02.2011
Magni mun keppa í úrslitunum í Júróvision á lagardaginn og gæti orðið fyrsti Borgfirðingurinn til þess að sigra slíka
keppni svo vitað sé.
09.02.2011
Nýja fréttakerfið gefur okkur kost á því að vera með lifandi fréttir að heiman og hérna fáum við fyrsta skammtinn af
slíkum fréttum.
08.02.2011
Hin margrómaða bíómynd Grunnskóla Borgarfjarðar, "Glúmur Glæsifés" er komin hingað inn á síðuna og eru margir eflaust
spenntir að rifja þessa snilld upp.
07.02.2011
Eins og við flest vitum þá gaf borgfirðingurinn Jón Arngríms, ásamt hljómsveit sinni Nefndinni, út disk á síðastliðnu
ári með lögum við ljóð Hákons Aðalsteinssonar og hefur hann selst vel. Nú var Arnar Eggert, sem af mörgum er talinn
tónlistargagnrýnandi Íslands að gera opinberan dóm sinn um þennan disk.
07.02.2011
Guðgeir frá Desjarmýri sendi síðunni áhugaverðan texta um lendingar í Borgarfjarðarhreppi eru teknar úr „Skrá yfir
lendingar og leiðarmerki eftir skýrslum frá hreppsnefndaroddvitum skv. lögum nr. 16, 14. júní 1929.“